02.12.2009 16:03

Sjómannaafsláttur LÍÚ

GÓÐUR......:) Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LíÚ, er orðin okkar helsti bandamaður er varðar sjómannafsláttinn. Gott viðtal við hann í bítið á Bylgjunni í morgun. http://bylgjan.visir.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=49906 Ég sé að það er ekki mikil þörf fyrir að vera með forystu til að verja hag sjómanna. Þetta er að verða eins og hjá Vilhjálmi Egilssyni hjá samtökum atvinnulífsins og Gylfa Arnbjörnssyni hjá ASí. Þeir eru eins og samlokur og sammála í öllu. Eitt sem ég hjó eftir í viðtalinu. Ríkið varð af skatttekjum, af 7.8 miljarði, vegna dagpeninga sem greiddir voru á síðasta ári.

18.11.2009 04:04

Nátttröllin þrjú

Nátttröllin þrjú

Einu sinni voru þrjú nátttröll sem ætluðu að sneiða Vestfirði af Íslandi, með því að moka sund þar sem styst er á milli Breiðafjarðar og Húnaflóa. Til að hleypa í sig eldmóði ákváðu þau að keppast um að búa til sem flestar eyjar úr því efni sem til félli við moksturinn. Þau skiptu liði og hófust handa. Að vestanverðu mokuðu karl og kerling inn Gilsfjörð og hömuðust sem mest þau máttu. Breiðafjörðurinn er grunnur og því urðu eyjarnar eins og berjaskyr um hann allan. Að austanverðu fór allt miður. Bæði var tröllkerling sú er mokaði í Kollafirði ein að verki og Húnaflói miklu dýpri en Breiðafjörður svo flest það sem hún kastaði frá sér varð að blindskerjum sem síðan hafa gert Flóann hættulegan skipum.

Tröllin þrjú kepptust við alla liðlanga nóttina og uggðu ekki að sér fyrr en birta tók af degi. Þá tóku vestantröllin til fótanna og stikuðu hvað þau gátu yfir Steinadalsheiði og út Kollafjörð í leit að felustað. En sólin kom upp og náði að skína á þau rétt innan við Kollafjarðarnes þar sem nú heitir Drangavík. Þar urðu þau að steindröngum þeim sem enn standa. Er annar drangurinn allur meiri um sig að ofan og mjókkar niður, og er það karlinn. Hinn er uppmjór og gildnar allur niður svo sýnist móta fyrir niðurhlut og jafnvel lærum. Er það kerlingin.

Skessan sem mokaði að austanverðu varð líka sein fyrir og gáði ekki að sér fyrr en birta tók. Stökk hún þá í snarhasti norður yfir Steingrímsfjörð og komst að klettabelti einu sem þar gengur í sjó fram og heitir Malarhorn. Varð henni þá litið út yfir Húnaflóa og sá að eftir næturlangt stritið hafði henni ekki tekist að mynda eina einustu eyju, bara fáeina varphólma og smásker. Í reiði sinni tvíhenti hún reku sína og hjó henni í grellsköpum í Hornið um leið og sólin skein á hana. Við það sprakk úr Horninu fram á Steingrímsfjörð eyja sú myndarleg er Grímsey heitir. Er það eina stóreyjan sem skessunni tókst að mynda og segja menn að sama berg sé í eynni og í Malarhorni og sé því augljóst að af því bergi sé hún brotin.

Við norðurenda Grímseyjar er háreistur klettur líkur nauti að lögun og heitir Uxi. Þann uxa átti kerling og stóð hann á Horninu þegar hún sprengdi það fram á fjörðinn og dagaði uxann þar uppi. Kerlingin varð hins vegar að steindrangi þeim sem Drangsnes er kennt við og stendur á grasbala í norðanverðu þorpinu, rétt innan við Malarhornið.

[Úr Ægishjálmi Magnúsar Rafnssonar]

09.11.2009 12:39

Gulllax hol hjá Hrafni GK111

25 tonna Gulllax hol hjá Hrafni GK 111

Valur og Binni kampa kátir


31.01.2007 16:52

Prufa á nýrri myndasíðu

Þetta er svona prufa að opna myndasíðu til allir sem hafa áhuga að skoða hafi greiðan aðgang að myndefni, af nógu er að taka. Ég hef lengi haft áhuga á ljósmyndun, var svolítið í dvala þar til að stafræna byltingin hófst fyrir alvöru.

Með kveðju

Bergþór

Flettingar í dag: 30
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 134
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 164487
Samtals gestir: 27252
Tölur uppfærðar: 29.4.2024 10:21:01

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Bergþór Gunnlaugsson

Farsími:

Tel +354 892 9448

Heimilisfang:

Grindavík

Um:

Skipstjóri Tómas Þorvaldsson GK 10

Tenglar